Blogg

Ég er Guðfinna - Ég er þögul og hávær- reið og glöð-áhyggjufull og afslöppuð- skilningsrík og ósanngjörn. Ég get verið margur jafnt sem vargur

12.2.2010

Hermikráka

Þessi umræða myndast alltaf í kringum 14. febrúar. 14 Febrúar, valentínusardaginn!
Hjörtu, blóm, matur, rómantík, ást, leynileg ástarskilaboð, kort og kossar. Þetta einkennir daginn í Bandaríkjunum og virðist vera æðislegur siður. Hjá okkur er ekkert leynilegt og kannski ekki alveg jafn rómantískt við þennan dag. Konudagurinn og Bóndadagurinn er engu að síður okkar dagar, sem við höldum upp á, og þótt ekki sé gert meira en blómvöndur og koss eða jafnvel boðist til að elda og opnað bjór fyrir manninn eða konuna. Þá eru þetta engu að síður okkar dagar og okkar venjur og finnst mér einkennilegt hvað við virðumst þurfa að "herma eftir" Já ég játa mér finnst þeirra siðir skemmtilegri, Halloween- krakkar úti á Kvöldin þegar það er myrkur, skorið í grasker og fullorðnir hafa metnað í að finna sjálfum sér búning og halda veislur,  og Thanks giving sem mér finnst ein besta hugmynd af degi sem hefur verið fundið upp. Dagur sem er tileinkaður fjölskyldu og minnt fólk á að vera þakklát fyrir hvort annað.

Ég held það sé eitthvað svo stolt inn í mér að ég geti ekki bara tekið venjur hjá öðrum þjóðum og haldið upp á þær á þessu landi þar sem aðrir dagar eru við líði. Þjóðernissinni kannski? Það hefur alltaf verið erfitt fyrir mig að herma eftir, því sjálf er ég stútfull af hugmyndum og finnst eitthvað rangt við þetta.

Skrifað 12.2.2010 kl. 17:02 af Guðfinnu Árnadóttur

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

28.1.2010

Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf.

Þjóðarstolt, hvað er þjóðarstolt, afhverju finnum við fyrir þessu, hvenær og hvað erum við svona stolt af.

Við erum sífellt að biðja um staðfestingu. Staðfestingu og viðurkenningu. Viðurkenningu á því að við séum hérna til og getum hjálpað öðrum, viðurkenningu á því að við séum til í þessum stóra heimi og getum skipt máli.

Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf.
"Ísland er ekki lítið land, það er stórasta land í heimi." - sagði Dorrit nýja forestafrúin okkar. Ég brosi alltaf þegar þetta er spilað í fjölmiðlum og get svo sannarlega verið sammála henni. Þegar við fengum sjálfstæðið iðaði fjöldinn af montni, sjálftrausti og öryggi um að við værum loks viðurkennd sem sjálfstæð þjóð í þessum heimi. Þetta "stórasta land í heimi" var komið til að vera og ætlaði að, jaaa sigra heiminn?

Við sameinumst þegar vel gengur, en þegar illa gengur hugsar hver um sjálfan sig og eigingirnin blossar upp. Þetta er eitthvað sem er innprentað í marga. " fnuss, ég hugsa um mig sjálf"

Með árunum fer ég að bera meiri virðingu fyrir landinu okkar, sögunni okkar sem er varðveitt vandlega og er mikil. Menningunni okkar sem er sér á báti, gildin sem eru gamaldags og verður vonandi haldið í sem lengst, fólkið sem er duglegt og hraust, og síðast en ekki sýst fallega fallega umhverfið sem maður fer að bera virðingu fyrir. Það er ástæða fyrir því að Gunnar á Hliðarenda hlýddi ekki skipun um að yfirgefa Island í Njálu.  "Fögur er hlíðin svo að mér hefir hún aldrei jafnfögur sýnst, bleikir akrar en slegin tún, og mun eg ríða heim aftur og fara hvergi."  sagði kappinn og stóð við það.

En það sem mér finnst mest skemmtilegast við Ísland er hversu það kemur manni á óvart.  Ég er ekki hrifin af kuldanum sem er hérna á landinu, en á vissan hátt finnst mér orðið gaman af breytileika veðursins. Fyrir hádegi er sól og eftir hádegi er stórhríð og um kvöldið eru norðurljós í logni og fallegu vetrarveðri. Ég las fréttirnar í dag og fattaði á hversu yndislega miklu ævintýra landi við búum á.

Lögreglan í Þingeyjarsýslum og Umhverfisstofnun hvetja fólk einkum í dreifbýli til þess að hafa allan vara á þegar það er á ferð útivið. Þessi dýr eru stórhættuleg. Þótt þau virðist klunnaleg geta þau hlaupið hraðar en nokkur manneskja, ekki síst ef þau eru hungruð.


Já það er verið að vara fólk við ísbirnum á landinu. Hversu dásamlega klikkað er það að búa á þessu landi.

Ég er að reyna líta björtum augum á fjárhaglega erfiðleika Íslands og segja að sumir hafa mjög gott af henni. Draumur minn um að sjálfsþurftabúskapur sé tekin upp að nýju á auknum stíl kemur upp í hugann Það er aldrei hægt nema að vissu leyti í dag reyndar.
Ég vildi óska að ég kynni hannyrðir og mundi sauma föt á mig og börnin, og gæti ræktað allt mitt grænmeti og búið til ost og átt kú og hænu og kynni á jurtir.  Ég ætti kannski bara að gerast bóndi og taka mig á orðinu. Nei það er auðvelt að keyra bara bílinn í Nettó og KAUPA þetta. En ég væri alveg til í að þetta væri tekið upp í auknum stíl og já jafnvel að fólk gefi bara skít í hvað allt er orðið dýrt og segji "fnuss ég sé bara um mig sjálf" og rækti rabbabara í garðinum og fái sér annaðslagið ókeypis rabbabaragraut í matinn:)


Frá einni sem þykist vilja vera bjartsýnni um kreppuna og sér hvað Ísland er skemmtilegt land stundum:)


Skrifað 28.1.2010 kl. 10:45 af Guðfinnu Árnadóttur

Bein slóð á færslu

10 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.11.2009

Betra gras hinum megin?

Geiturnar þrjár þráðu eitthvað meira, þær sáu yfir brúnna og freistaði þeirra græna grasið og þær töldu sig muna vera hamingjusamari "hinum megin". Hið hugrekka kiðakið lét ekki bjóða sér slæmu vistina og hætti sér fyrir betra líf  hinum megin við brúnna þrátt fyrir stóra skrímslið undir brúnni sem passaði að enginn skildi fara yfir. Kiðakið komst yfir með loforði um stærri geit sem mundi fylgja á eftir, skrímslið mundi frekar vilja éta hana. Var kiðakið virkilega til í að fórna foreldrum sínum til að komast yfir? Eða var kiðakið sniðug geit og vissi að geitapabbi mundi sjá um þetta, en því fór geitapabbi þá ekki fyrstur?

Hver er að trampa á brúnni minni? Það er bara ég sagði hugrakka geitin.

Íslendingar eru farnir að hverfa frá landinu í stærri stíl en áður, sjá þeir yfir hafið ,grænna gras og betri vist,  verður nýja Ísland byggt upp á ný?  Viljum við fórna landinu okkar til að hafa betri kjör þegar vistin er slæm.

Hver er að trampa á brúnni minni? Það er bara ég, geitamamma.

En hvað ef einn tekur á skarið, fylgja þá ekki oft fleiri á eftir þegar þeir sjá hvað er í boði annar staðar? Var kiðakið orðið leið á því að fá ekkert að borða því geitapabbi var gráðugur? Geitapabbi er allaveganna skilin eftir og ekki gerir hann neitt í málunum fyrr en þau minnimátta hafa farið yfir.

Hver er að trampa á brúnni minni? það er bara ég, geitapabbi!
þá kem ég upp og ét þig!


Það er svo mikil reiði í þjóðfélaginu, það þarf að finna "skrímslið" sem er að gera vistina hér svo slæma svo við fáum græna grasið okkar. Hver er þessi geitapabbi, og hvenær kemur hann?

Skrifað 23.11.2009 kl. 12:04 af Guðfinnu Árnadóttur

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

24.10.2009

Þá voru ekki til hjól

Þá voru nefnilega ekki til hjól...

Ég held að þetta sé eitthvað sem ég verð að koma frá mér. Ég verð nú ekkert oft orðlaus en í gær vissi ég ekki hvernig ég átti að koma orðum af undrun minni. Í gær pöntuðum við Pizzu með mömmu og pabba og elduðum franskar kartöflur og svolgruðum með flatbökunni sýru í glasi með dágóðum sykri út í. Sölkupizzur standa fyrir sínu og var kátína í liðinu. Allt saman hið besta mál og þeir ágætu menn Sveppi og Auddi með þátt sem við horfuðum á í eldhúsinu á meðan við nærðumst. Ég var hrifin af þessum þætti og ánægð með þá, þeir nefnilega ákváðu að prufa að líma fæturna á sér saman og rúlla sér um bæinn og kynnast degi í lífi manneskju í hjólastóls með öllu því sem fylgdi. Þeir fóru á kaffihús ásamt tveimur öðrum sem þeir ræddu við.

Þetta var rannsóknarleiðangur,

Að mínu mati góður rannróknaleiðangur því hann vonandi sínir fólki að það er ekkert auðvelt að vera í hjólastól og oft allt í lagi að bjóðast til að aðstoða. En þá ætla ég að koma að partinum þegar ég varð orðlaus og undrandi. Þeir ákváðu að fara í landsbankann en við aðalinnganginn voru stórar tröppur og engin leið að komast inn í hann. En maður sem var í ingangnum, líklega starfsmaður síndist mér benti þeim á að þeir kæmust ekkert inn, og þyrfti því að fara bakvið húsið og fara þar inn. Ekki nóg með að það sé undarlegt að fólk í hjólastól þurfti að fara bakvið og ekki sama inngang og aðrir þá var þar bara enginn hjólastólabraut eins og maðurinn hafði sagt þeim. Þarna hafði verið sent þá "fíluferð" og enginn leið að leysa málið þar heldur.

Átti starfmaðurinn ekki að vita að það væri heldur ekki hjólastólabraut hinum megin?

þeir biðja mann um að ná í einhvern að innan til að hjálpa þeim inn í bankann og það er gert. Stuttu síðar kemur önugur maður að þeim og tuðar eitthvað um að þeir séu með myndarvélar, allt í góðu með það, allt í góðu að fara ekki með myndarvélar inn í bankann. En þá spyr maðurinn sem er í raun og vera í hjólastól hvernig hann eigi að komast inn í bankann. Önugi maðurinn hreytir þá þessu í hann.

Þessi bygging var byggð fyrir 130 árum sirka og þá voru ekki til hjól!

Þá voru ekki til hjól???? Ég segji eins og sveppi eða auddi sögðu þá: Gátu þeir ekki sleppt einhverju af þessum einkaþotuferðum og stóru árshátíðunum og útbúið hjólastólastíg.

'Eg hélt að starfsfólk landsbankans nefnilega væri menntað fólk og vissi að þótt hafi ekki verið mikið af hjólastólum á Íslandi  fyrir 130 árum þá er það núna!


Skrifað 24.10.2009 kl. 11:55 af Guðfinnu Árnadóttur

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

15.10.2009

Má bjóða þér í glas?

Stelpa í miðbæ Akureyrar bað um að sér yrði boði í glas því að
viðkomandi hafi lagt hana í einelti þegar hún var yngri. Ég heyrði að viðkomandi neitaði að hafa gert slíkt, en játaði að hafa vitað að henni hafi verið strítt af öðrum þegar hún var yngri og taldi sig því ekki þurfa að bjóða henni í glas. Stúlkan hélt því fram að strákurinn hafi gert það líka. Enn og aftur neitaði strákurinn því og sagðist ekki hafa komið nálægt því að stríða henni. Engu að síður og skiptir það svosem ekki máli þetta samtal, nema að stelpan segir : Jú víst þú stoppaðir ekki eineltið svo nú áttu að kaupa handa mér skot...

KAUPA HANDA MÉR SKOT! Já fyndið að hún virtist ætla að fyrirgefa svo lengi sem að maðurinn borgaði handa henni pínulítið glas með oggulitlum vökva sem er alcahol í sem hún drekkur í einum sopa. Spurning hvort hjartað á henni hafi verið alveg molbrotið eftir stríðnina fyrst það þurfti ekki meira til. Þetta minnti mig á hvað stúlkur á djamminu ganga langt til að þurfa ekki borga sitt eigið alcahol. Það er dregið bolurinn niður, dillað rassinum, daðrað alveg hreint niður í rassgat til að þær þurfi ekki sjálfar að greiða fyrir glasið.Oftast nær er engin meining með þessu daðri og er því bara tilgangurinn einungis að drengurinn borgi en ekki hún sjálf. Þetta er leikur, sem margir leika og hafa gaman af.... Þarna geta stelpurnar líka athugað hvað þær geta gengið langt og hversu mikill kynþokkinn virkar virkilega á drengina.

Þetta er bara leikur...

Leikur sem ég tel vera svona langt fyrir neðan virðingu stúlkna, langt fyrir neðan  virðingu kvenfólks á Íslandi. Við eigum að vera stoltari en þetta. Mér hefur verið boðið í glas og þáð það, það er annað mál, þá líka er það vinur eða maður sem ég gat spjallað við og þakkað þannig fyrir glasið. En á tímabili þegar ég tók sem mest eftir þessu og þetta pirraði mig sem mest ákvað ég að labba upp að næsta strák sem ég sá, sem var  ungur strákur frá Skagafirði sem var í fylgd með frænku minni þaðan. Og ég spurði :má ég ekki bjóða þér í glas? Tilgangur minn var ekki að tæla drenginn eða heldur ætlaði ég mér ekkert að tala meira við hann þetta kvöld svosem. Hann var hinn allra vandræðalegasti og sagði nehh stelpur eiga ekki að bjóða strákum á barinn.

Stelpur eiga ekki að bjóða strákum á barinn

Afhverju ekki, eftir að ég hafði fengið það í gegn að ég ætlaði að bjóða honum leið mér betur. Mér fannst þetta ákveðin sigur fyrir kvenþjóðina:) Lítill og merkingalaus sigur kannski, en einhvern veginn leið mér vel með það að geta sagt að ég hafi boðið strák í glas á barnum.

Því er þetta lítil áskorun ef einhver les þetta að ef ykkur líst á strákinn á barnum prufaðu að bjóða honum í glas, ekki bíða eftir því að hann komi eða ekki ganga að honum og biðja hann um að bjóða þér í glas, ég held að góðu strákarnir séu hættir að falla fyrir þessu;)

Skrifað 15.10.2009 kl. 12:34 af Guðfinnu Árnadóttur

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

30.6.2009

Grænir fingur

Paprikas.....
Ég held svei mér þá að sumarvinnan á Hveravöllum í gamla daga hafi litað fingurnar á mér eitthvað.
Áhuginn á grænmeti og kryddjurtum hefur sjaldan verið jafn mikill og draumurinn er að eignast lítið gróðurhús sveimar ekki djúpt í kollinum.
Ég lét mér þó nægja stofuræktun á papriku í stofunni í bili og það spruttu upp 2 eldrauðar og fallegar paprikur sem voru teknar af í gær og myndaðar auðvitað;)









Síðan er eins gott að þær bragðist eins vel og þær líta út:)

Kveðja úr paprikuræktun í Stekkjartúninu:)

Skrifað 30.6.2009 kl. 20:59 af Guðfinnu Árnadóttur

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

29.6.2009

Hundar

Ég var ekki fyrr komin út með krakkana á leikskólanum í dag þegar ég ætlaði að setjast í brekkuna í góða veðrinu þegar ég var næstum búin að setjast á heilan haug af SKÍT. ILLA lyktandi og greinilega eftir stóran hund. Flugur í kring voru að gæða sér á þessum líka ilmandi og fínu hæðgum. Ólétta klíjugjarna ég nældi mér í stóra hanska, pappír og poka og kom mér í stellingar að þrífa upp fyrir eigendur þessara snyrtilega hunds. Lykt fer ennþá í mig á lokasprett meðgöngunnar og fannst mér þetta því alls ekki það skemmtilegasta sem ég hef gert.  Ég veit ekki hvort það sé erfitt að hafa stjórn á hægðum hunda eða dýrum almennt, en ég mundi nú samt ekki vera með hundinn minn á leikvelli sem ung börn leika sér á, án þess að vera með græjur til að verka upp ef slys skildi eiga sér stað. Já og þarf ég að minnast á að ég mundi ekki hafa það í mér að skilja verknaðinn eftir síðan?


Ég fór að pæla að hundaeigendur segja oft: Að eiga hund er eins og eiga börn. Ég get vel trúað því, hundar eru yndileg dýr og hin skemmtilegustu... margir titla sig pabba og mömmu hundanna. Einhvern veginn verð ég þá að leyfa mér að velta því fyrir mér hvort það sé mikið til að vanhæfum hundaforeldrum? Dýrin mega skíta og pissa þar sem þau vilja og hugsunin liggur bakvið " Það þrífur þetta einhver annar" Ég veit ekki en ég leyfi börnunum mínum allaveganna aldrei að kúka á almannafæri.

Guðfinna

Skrifað 29.6.2009 kl. 16:03 af Guðfinnu Árnadóttur

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

18.6.2009

heitar étnar pylsurnar við fjölmörg sölutjöld....Hæ Hó jibbíjey og jibbíjey

Allaveganna var dóttirin glöð að fá pyslur í gær. Magapestin ógurlega nefnilega bankaði óvænt upp á hjá okkur og stoppaði ansi lengi hjá okkur. En leyfi frá lækni var fengið í gær að fara borða "eðilegt" fæði á ný.... og læknirinn sagði að meira að segja að Pysla á 17 júní væri í fínu lagi.
Ég föndraði um daginn, ég var ekkert að ljúga því. Það var bras, en það kom eitthvað úr því.

Hárbandið og böndin um hendurnar gerði ég á myndinni hérna fyrir ofan, og þetta sem átti að taka 30 mínútur tafðist auðvitað í að verða heila kvöldstund (,")

17 júní var haldin hátíðlegur í gær. Með kjól og fléttum og pylsu í hönd á ráðhústorginu.


Síðustu helgi fórum við hjúin suður, bara 2 og dundum okkur í búðum, heimsóttum vini og fórum í fallegt brúðkaup í Skálholti. Bara fín helgi og haldiði að mín hafi ekki keyrt í fyrsta sinn í Reykjavík. Núna um helgina tekur síðan við útilega í Skagafirði, eða nánar tiltekið ættarmót sem verður vonandi hressandi bara og engin rigning:) Það er náttúrulega bannað að láta rigna þegar maður er í útilegum.......

Guðfinna

Skrifað 18.6.2009 kl. 14:28 af Guðfinnu Árnadóttur

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

10.5.2009

Má það í kirkju :)?


Góða kvöldið
Grasið er orðið grænt á Akureyri, komnar 3 paprikur á plöntuna mína, lömbin komin í sveitinni, strigaskórnir, grillið og hjólin tekin út úr geymslunni. Allt að gerast.

 Ég fór með Stellu í langþráðan kirkjuskóla í daga, eða fjölskyldumessu sem er haldin mánaðarlega í Glerárkirkju. Stella talar mikið um Jesú og kirkjuna og vill alltaf skoða kirkjur og jafnvel kirkjugarða þegar við keyrum framhjá. Allt sem sínir krossinn:) Hún veit að krossin merkir kirkjuna og guð. Hún biður bænirnar sínar og biður guð um að blessa hennar nánustu. Þetta er barn sem ég sé ekki eftir að hafa skírt í kristna trú. En einhvern veginn hef ég verið svo löt að fara með hana í kirkjur og sérstaklega messur og kirkjuskóla. En þegar hún hefur farið í  messur eða kirkjur situr hún dáleidd blessað barnið. Í dag gerðum við bætur á og skelltum okkur semsagt á vorhátíð og fjölskyldumessu í Glerárkirkju. Ég var ekki búin að vera lengi þegar ég galopnaði augun og starði á Arnar og sagði " Má þetta"???
Prestarnir voru 2 og annar presturinn spurði hinn: Veistu hvað mig langar að gera þegar ég heyri þessi orð? Hinn kváði við og sagðist ekki geta ímindað sér það. Þá stökk hinn presturinn upp í loftið og blakaði höndunum örlítið í leiðinni og sagði að honum langaði bara að hoppa af gleði og segja halelúja. Arnar spurði hvort við værum í gospel kirkju? Presturinn var hinn líflegi alla messuna og brosti og hló og hoppaði og fékk aðra til að hoppa. Hann var æðislegur!! Síðan var grillað og boðið upp á brúðuleikrit, hoppukastala og kerru sem hestur dró. Það eina sem mér fannst leiðinlegt við þessa stund var þegar presturinn tók upp bakka með gjöfum á, sirka 10 gjafir með fallegum rauðum borðum. En áður en hann byrjaði að tala þá hópuðust börnin að altarinu og liggur við réttu út hendina. Þessar gjafir voru ætlaðar starfsfólki við kirkjuna sem presturinn færði og bað að koma upp að altarinu. Því miður tengja börn of oft alla atburði sem þeir fara á við það að þeim sé færð gjöf eftir á. Hvort sem það er tannlæknirinn, læknirinn, klipping, börn fá verðlaun eftir allt sem þau "þurfa" að gera.


En talandi um vorið, já það eru komin lömb í Brúnahlíð.
Hlakka til að fara aftur með Stellu og leyfa henni að kynnast lömbunum betur, það voru komin svo fá þegar við fórum síðast.

Guðfinna

Skrifað 10.5.2009 kl. 20:47 af Guðfinnu Árnadóttur

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

30.4.2009

Best að skíta á sig og ráðast á einhvern og fá sér síðan svínaflensu í kreppunni


Hvað er að gerast með þjóðfélagið, hvað er að gerast?
Hvernig stendur á þessu, því í ósköpunum, hver er tilgangurinn?
Hér áður fyrr riðu menn á hestum á kjörstað, klætt sínu fínasta pússi með sparihattinn og í sparifötunum. Þetta var fínn og flottur dagur. Í dag girðum við nett niður um okkur höfum hægðir í kjörklefanum og eins kvenlegt og nett þetta allt saman er, auðvitað verður að hafa þetta á filmu þegar lollinn skíst út og lendir á seðlinum. Það er bara ísland í dag.

Hér áður fyrr voru 15 ára stelpur í fallin spýta, 10 skref, yfir og feluleik, þróunin varð síðan að þær voru farnar að prufa snyrtidót og jafnvel fara labb í bænum og rúntinn. Núna í dag eru stelpur miklu miklu miklu meira töff og eru orðnar það "fullorðnar" að þær nota ofbeldi til að leysa sín mál. Auðvitað er rétta svarið við þessari hegðun að sjálfsögðu ekki þróun sem veldur auknum þroska hjá unglingsstúlkum, heldur er þetta mörg mörg skref niður á við. Jafnvel það mörg skref að hægt sé að líkja við hegðun leikskólakrakka sem kunna oftar en ekki að nota tungumálið ennþá nógu vel og nota því hnefann.

Það hefur aldrei verið jafn gott og hollt fyrir okkur að hella okkur í eigin hugsanir, bækur, kvikmyndir, aldrei verið jafn hollt að eiga áhugamál og dundur sem hægt er að grípa í. Ég held nefnilega að það sé það mikið að gerast í heiminum í dag og kannski sérstaklega þessari litlu eyju okkar að við eigum að taka nokkur skref til baka í hausnum á okkur, anda inn, anda út, lifa fyrir núið og hugsa um okkur sjálf í smástund.
Ég á til dæmis yndilslega fjölskyldu, barn á leiðinni sem vonandi fæðist í rólegt andrúmsloft,og verð að minna stressuðu mig á það annaðslagið oftar:)


Ég hef haft margt til að blogga um, og höfuðið fullt af allskyns hugmyndum og pælingum.
Sem gleður mig, ég var á tímabili orðin að ég hélt geld algjörlega andlega.
Ég meira að segja tók upp pennann og reyndi að yrkja fyrir stuttu og vonandi
að það komi góður tími til að klára það við tækifæri.
Sköpunargleðin er að verða mikil, það mikil að ég fór í föndurbúð og keypti efni og allskyns
föndurdót og nú skal tekin upp saumavél um helgina og prufa að sauma
Já þið heyrðuð rétt SAUMAVÉL...haha sjáum hvernig það endar:)





Góða Langa Helgi.

Guðfinna Árnadóttir

Skrifað 30.4.2009 kl. 17:25 af Guðfinnu Árnadóttur

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

5.4.2009

Bland af hinu og þessu...


Stella er ótrúlega dugleg að hjálpa til heima og hérna sjáum við hana útbúa girnilegustu súpu heima hjá sér...algjör snillingur


Arnar varð 29 ára, og þegar hann kom heim úr vinnunni vorum við tilbúnar með eftirrétt handa honum.



 

Það varð auðvitað að mynda prinsessuna líka með sinn ísdisk:)

Við erum búin að vera í leti alla helgina í sveitinni, í sól og hita sem er ekkert nema
gott mál. Hér er ein tekin í dag af Stellu vinnumann...



Ef ég skrifa ekkert fyrir páska, óska ég ykkur gleðilegra páska
og ljúfu páskafríi

Guðfinna Árnadóttir

Skrifað 5.4.2009 kl. 15:34 af Guðfinnu Árnadóttur

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

19.3.2009

Veisluferð suður

Það er alveg að koma helgi aftur, þær koma alltaf, þótt manni finnist óendalega langt í þær á mánudegi. Á föstudaginn síðasta fórum ég, Arnar og Stella suður,  við nýttum ferðina aldeilis vel,náðum í barnavagn í Keflavík sem mamma og pabbi ætla að gefa okkur og litla fimleikakrílinu okkar:) Vagninn var flottari en ég hélt og dekkinn þykkari en ég hélt þau mundu vera, sem er bara ekkert nema frábært mál. Við fórum í heimagerðapizzu þar hjá Tryggva vini Arnars, jesús þetta var svooo góð steinbökuð pizza.
Mamma og pabbi leigðu íbúð sem við vorum í alla helgina með þeim, og á sunnudeginum var síðan fermingarveisla og matur hjá Sonju systur Arnars. Það var semsagt ekkert svelt sig um helgina.

Hérna er Stella gella í borginni...

Jói og afi..



Síðan vorum við að flytja í Stekkjatún í Febrúar.
Við keyptum okkur sófasett.


Stellu herbergi...


Keyptum náttborð og nýtt rúmteppi...


Ég gæti búið í þessu baðherbergi..elska það...











Velkomin í kaffi .....
                                  Guðfinna



Skrifað 19.3.2009 kl. 18:23 af Guðfinnu Árnadóttur

Bein slóð á færslu

9 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

10.3.2009

oooog svo sleppa...

Það eru engar pælingar, ekki eitt einasta orð, hneykslin eru orðin það mörg að eitt stendur varla upp úr í heiminum í dag. Hvort sem það er drepið konur í dúfnakofum, rænt börnum, rænt heimilum vegna fátæktar...já um að gera að taka frá öðrum þegar maður missir sjálfur hluti, sniðugt! Já eða hvort sem það er KREPPUTAL, kreppa kreppa, kreppa, eru ekki allir á Íslandi löngu löngu komnir með sveppasýkingu niðrí tær af þessu viðbjóðaorði. Já það er kreppa á Íslandi ef fólk hafði ekki vitað af því. Já og tölum ekki um þetta sem er að verða "venjulegt" barnaperrar dæmdir, nauðgarar dæmdir, fjárdráttur og atvinnuleysi. Nú er verið að reyna "hrista aðeins upp í liðinu og reyna hressa það við með jákvæðum fréttum til dæmis að við kunnum að prjóna og sendum lopapeysur til fólks sem deyr úr kulda. Já það er gott að eiga kindur.... það segir stella allaveganna. Hún segir að mamma sé með barn í maganum, Ísabella kindin hennar sé með lamb og hún sjálf sé með hvolp í maganum. Hún fann hann meira að segja hreyfast í dag, trúðiði mér ekki. TSS það er nú samt satt, það segir hún allaveganna og ég hef enga ástæðu til að efast um orð hennar. Hún meira að segja sagði mér einn morguninn þegar við vorum að fara í leikskólann að henni væri illt í maganum. Ástæðuna sagði hún mér nokkrum mínútum síðar, hvolpurinn var að reyna að komast út. Það er búist við litlum hvolpi á heimilið eftir 10 daga. Við Arnar erum tilbúin með bein og annan búnað sem barnið hennar mun þurfa fyrstu dagana. Stelpan mín er sniðug. Það verður ekki tekið af henni
.
Hin stelpan mín, eða hinn strákurinn minn hefur það voðarlega gott í maganum á mömmu sinni og heldur að ég mjólki betur því meira sem hann hreyfir sig og sparkar í mig. Eflaust er það líka rétt hjá því og sniðugt að gera. Það er allaveganna gott að vita að vita að barninu líður vel.
Talandi um ófædda krílið þá keypti ég mér barnavagn, eða nánar tiltekið reddaði Arnar nú þessu í dag fyrir mig. Hægt að skoða vagninn HÉR   - Þetta er eins vagn en notaður af einu barni, eins og þið sjáið kostar nýr vagn rúmar 144 þús krónur og ég fæ hann á 35.000. 
kreppa - kreppa - kreppa.......oooooog slaka svo.....!!!


Myndataka: Arnar







Með kveðju
Guðfinna



Skrifað 10.3.2009 kl. 21:03 af Guðfinnu Árnadóttur

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

4.3.2009

Gyrt í brók

Góða kvöldið.
Við Stella erum að horfa á Latibær, önnur okkar með báðum augum og hin ekki eins áhugasöm.
En rétt áður en ég fer að elda ætlaði ég að sína ykkur hvað stelpan mín var óendalega falleg á öskudaginn.

Við erum búin að bralla margt síðustu daga til dæmis þorrablót hjá tengdó, matarboð hérna heima, heimsóknir, sund og matur á dalvík..
Af bumbugullinu er allt gott að frétta, sterk spörk hjá fimleikakrílinu okkur, og svona ágætis kúla að myndast. fórum í sónar núna um daginn og fylgjan komin á réttan stað, ógleðin loksins hætt og nú nýt ég þess að borða og borða. Enda ekki getað það að neinu viti í einhverja mánuði. Finnst maður eiga það skilið núna. Hinsvegar Arnar ekki sáttur hvað ég er ánægð með að fá lystina aftur, helst vill ég steik í hvert mál og hann í sínu átaki ekki alveg eins sáttur með það. Hinsvegar er hægt að bræða hann með öllu og segjast bara vera ólétt og blikka augunum smá, þessi elska;)

Kveðja úr stekkjarholtinu.


Skrifað 4.3.2009 kl. 17:56 af Guðfinnu Árnadóttur

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.2.2009

fljótandi typpalingar, læknirinn í panici, hjálp!

Mig dreymdi draum um daginn ég var í sónar og við ætlaði að sjá kynið. Síðan sjáum við þennan fína typpaling þegar allt í einu í sónarnum sjáum við að hann dettur af og myndast leggöng á barninu á sömu stundu. Haldiði ekki að typpið fljóti upp og læknirinn fer í panic og segist aldrei á sinni læknisæfi nokkurntíma hafa séð neitt slíkt og allt í rugli og ég í rugli þarna í draumnum. Vakna nú líka í rugli og fer að íminda mér hvað þessi draumir hafi mögulega getað þítt, ef eitthvað átti að þíða. Þegar leið á daginn fór ég að hræðast manneskju í vitlausum líkama, kynskipting og allskonar pælingar.
Ég held að óléttum konum í sínu hormónabrjálæði sé stundum hollt að hugsa ekki of mikið.

Ég ætla semsagt að gera það um helgina, hætta að pæla of mikið í sumum hlutum og reyna njóta helgarinnar, bið ég þess að þið gjörið slíkt hið sama og óska ykkur góðra drauma.

Kveðja Guðfinna

Skrifað 20.2.2009 kl. 17:06 af Guðfinnu Árnadóttur

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

11.2.2009

Nytt ár, nýjir tímar...

Jesús minn hvað ég hef bara gleymt blogginu undanfarið...
Held ég kenni Facebook algjörlega um, þar eru allir sem vilja vera með málum málanna
á internetinu. Þar kemst maður að alskonar slúðri og veit allt um alla...hehe gott fyrir
netfífkla eins og mig: )

Ég var að skoða myndir í tölvunni og fann fullt af myndum frá þrettándagleði Þórs sem við Stella, Arnar, Ágústa og Freyja fórum á.



 

Og voru jú líka áramót


Og síðan var Þorrablót árið 2009 haldið hátíðlegt í Ýdölum.
 





Hjartagullið sem á að fæðast í Júlí!
Við Arnar erum að fara eignast lítið kríli og gætum ekki verið spenntari yfir þeim fréttum. Meðgangan hefur ekki gengið sem best svona í byrjun.
Lystarleysi, blæðingar, slappleiki, ógleði a hæðsta stigi, 4´ sinnum í sónar, eina nóttina beint upp á slysó út af mikilli blæðingu. Núna í síðustu viku komst í ljós að fylgjan var á kolvitlausum stað og þess vegna blæddi. Það blæddi síðan stanslaust í rúmlega 8 vikur. Í dag í skoðun hélt Hulda ljósmóðir að hún væri kannski að færast blessuð fylgjan og ennþá ekki útilokað að ég fái að fæða eðlilega en ekki tekin með keisara...
Vonum það besta...


Jæja þetta er orðið gott í bili, vona ég fái góðar undirtektir yfir að vera byrjuð að blogga aftur;)
Með kveðju
Guðfinna


Skrifað 11.2.2009 kl. 16:42 af Guðfinnu Árnadóttur

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

26.12.2008

Gleðileg Jól !!

Annar í jólum!

Við vorum að enda við að borða læri í boði Óla bróður. Og eftir uppvask ætlum við í smá göngutúr. Þessi jól eru búin að vera mestu letijól frá upphafi held ég. Þessi jól hafa einkennst af leti og veikindum hjá okkur, lungnabólga og hósti og kvef.



Stella var fallegust á aðfangadagskvöld.


Nokkrar fleiri eru í myndaalbúminu sem þið getið endilega skoðað.
En för okkar liggur á Akureyri seinnipartinn í mat til tengdaforeldranna
og Stella fer til pabba síns á morgun.
Ég óska ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári, með
kærri þökk fyrir jólakveðjurnar, jólakortin, gjafirnar og allt saman.

Jólakveðja
Guðfinna


Skrifað 26.12.2008 kl. 12:52 af Guðfinnu Árnadóttur

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

14.12.2008

Meiri snjó, meiri snjó, meiri snjó

Heil og sæl í desember.
Það eru um 10 dagar í jólin, ég er búin að vera ágætlega skipulögð og jólagjafirnar eru að verða búnar. Eigum sitthvoran bróðirin eftir ég og Arnar og erfiðasta gjöfin auðivtað eftir líka(Til Arnars), annars er þetta nokkurnveginn bara komið hjá mér. Ég tók þá ákvörðun að ég ætla ekki að skrifa jólakort í ár. Ef ég byrja á þessari hefð þá geri ég það á fullu á næsta ári, en annars gæti það vel farið svo að ég taki ekki upp þessa hefð að skrifa jólakort. Mér nefnilega leiðist það svakalega og ef ég ætla gera það vil ég gera það að alvöru með fallegum orðum og fallegri mynd.
Stella tók upp á því á fimmtudagsmorguninn að fá gubbupestina. Þessa ömurlegu magapest sem ætlar engann endi að taka. Hún gubbaði samfellt í 14 klukkustundir og var búin á því eftir þetta allt saman, litli anginn: Eða eins og hún sagði í eitt skiptið sem hún var búin að gubba yfir sig alla: Þetta er nú alls ekki nógu gott.
Ég á loksins myndir í tölvunni minni, myndir frá skautaferð sem við fórum í og einhverju fleira skemmtilegu sem ég blogga og skelli inn um leið og talvan er komin úr viðgerð.
Ég er stödd í sveitinni núna og ætlaði aðallega að blogga vegna þess að Óli bróðir síndi mér í vetur mynd sem ég ætlaði að fá að skella inn til að sína hvað snjóaði stundum mikið í Brúnahlíð;)

Óli að fara í vinnunni og mátti moka bílinn sinn upp...HAHA

Ég kem með myndir af Stellu skautadrottningu fljótlega fyrir jólin:)

                     Guðfinna

Skrifað 14.12.2008 kl. 10:53 af Guðfinnu Árnadóttur

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

21.11.2008

Gellur komnar í jólaskap

Hó hó hó.....Ég fór í geymsluna í vikunni til að athuga hvernig staðan væri nú á jólaskrautinu og seríunum og svona. Fann jólasveinabúninga, sem voru nú hálf sjúskaðir en fórum samt í þá og létum taka myndir af okkur

 
    
Set kannski hinar seinna hérna inn á heimasíðuna. Ég skreytti í leiðinni og setti upp nokkrar seríur, mikið agalega er gott að vera heima hjá sér þegar það er búið að gera svona kósí.

 

Síðustu helgi fórum við suður, Stella fór til pabba síns og mikið agalega skemmti hún sér vel, tilhlökkunin var líka gríðarleg.


En við átum á okkur gat af extra góðum mat og spiluðum og lékum okkur með skemmtilegu fólki í Reykjavík. Örvar og Guðrún skelltu sér í að kaupa hund áður en við fórum heim og okkur Stellu langaði alla leiðina heim að eiga hann : )

Um helgina er stefnan sett á að þrífa, fara heim aðeins á morugnn og taka því agalega rólega.
Góða helgi, og gleðilegan jólaundirbúning:)
Guðfinna





Skrifað 21.11.2008 kl. 16:14 af Guðfinnu Árnadóttur

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

14.10.2008

af því ég fór loks að trúa því

Stend ég öldur þjóðfélagsins í þessu óveðri? Það er hægt að reyna að vera skáldrænn, og það er hægt að vera reiður, það er líka hægt að vera leiður og sár, það er líka hægt að hlægja og gera grín. Það eru fullt af tilfinningum í gangi hvert sem maður fer núna, hvort sem það sé út í búð, kaffistofan í vinnunni, skólinn, heimsóknir eða í Bankann. Ég heyri sögur um peningarleysi , atvinnuleysi og ráðarleysi. Ég sé tár og ég sé áhyggjur. Atvinnuleysi er skelfileg tilhugsun fyrir fjölskyldufólkið sem reiknar með sínum tekjum. Það er mjög auðvelt að vera Páll Óskar núna og tala um sparnað í sjónvarpinu og segja að fólk eigi ekki að taka lán fyrir hlutunum og ekki kaupa hluti nema eiga fyrir þeim. Það er auðvelt að segja, vinnan mín er örugg og ég þarf ekki að pæla meira í þessum vandræðum sem blasa yfir. Þegar staðreyndin er sú að ekkert af þessu er auðvelt og fólk grætur af áhyggjum á íslandi. Mér finnst merkilegt að ég valdi þetta nafn á heimasíðuna mína nokkrum dögum fyrir yfirvofandi vandamál þjóðarinnar. Þetta var nefnilega setning sem skaust í höfuðið á mér einn morguninn, hvort mig hafi dreymt það eða hvað veit ég ekki. En hún losnaði ekki úr hausnum á mér og ég hugsaði um þessa setnignu allan daginn: Betra en gull. Stuttu síðar byrjuðu bankarnir að fara á hausinn og líst yfir gjaldþroti á Íslandi.
.....Betra en gull!

Arnar tók þessa flottu mynd af okkur mæðgum

Páll Óskar trúir nefnilega á "betra líf" það geri ég líka.

Nú lít ég bara í kringum mig og sé, alla þessa fegurð nærri mér

Ég tók því sem gefnu en staldraði aðeins við

Ég er á réttum tíma á réttum stað, hverjum get ég þakkað fyrir það ?

Ég opnaði augun og hjartað Fann á ný betra líf af því ég fór loks að trúa því

að það væri eitthvað annað, eitthvað meir og miklu stærra .....en allt sem er



Skrifað 14.10.2008 kl. 20:07 af Guðfinnu Árnadóttur

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

6.10.2008

Hundaknús

Heil og sæl og velkomin á nýja internet staðinn minn sem ég skýrði bara eftir langa umhugsun Betra en  gull. Ég vildi hafa nafnið eitthvað sem sýnir hvað mér þykir vænt um fólkið mitt og hvað ég er þakklát fyrir allt það góða í lífi mínu án þess að hafa það neitt alltof væmið kannski. En já ég segji Nýja heimasíðan en þetta er í rauninni Nýja/gamla því eins og eflaust sumir vita hef ég verið á flakkinnu um veraldarvefinn síðustu ár og hef haft erfitt með að negla mig fasta við einhverja eina síðu og hef meðal annars verið á 123.is áður Ég er haldin einhvern konar áráttu í fullkomnun í sambandi við útlit á þessum síðum : /

Þessi elska var á hlaupum í götunni hérna hjá okkur á móti umferð á fullu í gær og var greinilegt að þessi fallega tík hafði ekki hugmynd um hvernig heimurinn virkaði og hljóp beint á móti bílnum. Hún fékk húsaskjól, mat og umhyggju allan sunnudaginn hjá okkur þangað til að eigandinn hingdi um hálf 10 í gærkvöldi. Hún lá í fanginu á manni, kyssti mann og knúsaði mann. Mér var farið að líða eins og mömmu hennar. Hundadellann minnkaði nú ekki við þetta fallega dýr. Nú get ég ekki beðið eftir að ég fæ mér hund sem verður vonandi jafn fallegur og þessi.



Jæja gott fólk svínaskinkan í ofninum, og jólaölið í ískápnum....svona smá jólafílingur;)
Stella er veik heima í dag og verður líklega í fríi líka á morgun. Hún neitar að fá stíl því hún segir að það sé bara fyrir litlu börnin....þessi elska. og segist heldur ekki ætla að ganga frá dótinu eftir sig því hún sé svo veik. Haldiði að maður kunni ekki á þetta....Maður er kannski smár en hún er klár.

Góðar stundir. Kveðja frá einni í íbúðar og hundaleit þessa dagana.



Skrifað 6.10.2008 kl. 18:05 af Guðfinnu Árnadóttur

Bein slóð á færslu

12 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 15
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 12
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 12130
Samtals gestir: 4733
Tölur uppfærðar: 17.3.2010 17:27:28